11.6.2007 | 02:20
Mikil andstaða í Tékklandi gegn fyrirhugaðri gagnflaugastöð
Birtist á Friðarvefnum 11. júní 2007
Fyrirhugað gagnflaugakerfi Bandaríkjanna hefur valdið spennu milli Bandaríkjanna og Rússlands. Ætlunin er að setja upp stöð fyrir gagnflaugar í Póllandi og radarstöð til að þjóna kerfinu í Tékklandi. Viðræður hófust um þessar áætlanir milli varnarmálaráðuneytis Tékklands og bandarískra stjórnvalda í júní 2002 og í júli 2006 komu bandarískir sérfræðingar til Tékklands til að kanna hvar best væri að koma radarstöð fyrir. Fyrir valinu varð Brdy-herstöðin um 70 kílómetra suðvestan við Prag, en þar höfðu Rússar aðstöðu á sínum tíma. Áætlað er að ákvarðanir um staðsetningu þessara stöðva verði lagðar fyrir þing Póllands og Tékklands fyrir árslok.
Ekki eru allir á eitt sáttir í þessum löndum um ágæti þessara áætlana. Í febrúar var haldin ráðstefna í Prag um kjarnorkuvopn og 5. maí sl. var haldin þar alþjóðleg ráðstefna gegn hervæðingu Evrópu að frumkvæði tékkneskra herstöðvaandstæðinga (NE základnám) eins sagt hefur verið frá á Friðarvefnum.
Bæði í Póllandi og Tékklandi hafa skoðanakannanir sýnt mikla andstöðu gegn þessum fyrirætlunum, í Tékklandi eru 60% andvígir, og auk þess hafa æ fleiri úr hópi ráðamanna í Póllandi og þó enn frekar í Tékklandi farið að láta í ljósi efasemdir um þetta. Í allmörgum sveitarfélögum í nágrenni Brdy hafa verið greidd atkvæði um málið og hvarvetna hefur meirihluti verið á móti. Þessar atkvæðagreiðslur eru þó ekki bindandi.
Sjá nánar:
Alþjóðleg ráðstefna í Prag gegn hervæðingu Evrópu - Friðarvefurinn
Evrópa án kjarnavopna (um herferð evrópsku húmanistahreyfingarinnar gegn kjarnorkuvopnum) - Friðarvefurinn
Vígvæðing NATO: Bandaríkjamenn koma gagneldflaugum fyrir í Póllandi og Tékklandi Friðarvefurinn
Nation divided over plan to locate US radar base 70 km from Prague - Radio Praha
Antimissiles: Why Europe Resists (Antimissiles : pourquoi lEurope résiste) - Le Nouvel Observateur
Czechs Torn Over Missile Defense - Washington Post
Czech villages reject U.S. radar base in local plebiscites Peoples Daily Online
Um ráðstefnuna í Prag í febrúar 2007
NE základnám (tékkneskir herstöðvaandstæðingar bandalag um 50 samtaka)
Athugasemdir
Velkominn á moggabloggkommúnuna Einar! Gott að fá þig í hópinn. Bestu kveðjur frá Berlín,
Hlynur Hallsson, 11.6.2007 kl. 22:14
Það er gott að fá þessar féttir, ég hafði ekkert heyrt um málið.
María Kristjánsdóttir, 12.6.2007 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.