8.1.2008 | 18:30
Vígvæðing Íslands?
Ég birti hér síðasta hluta áramótagreinar á Friðarvefnum, en á undan fór stutt yfirlit yfir stöðu friðarhreyfingarinnar í heiminum og vaxandi vígvæðingu af hálfu valdamanna.
Vígvæðing Íslands?
Allt þetta hefur haft mikil áhrif hér á landi og má deila um hversu viturlega stjórnvöld hafa brugðist við. Árið 2006 markaði tímamót hér að því leyti að þá hvarf bandaríski herinn á brott frá Íslandi eftir fimmtíu og fimm ára samfellda veru hér. Þetta var fagnaðarefni þótt íslenskir herstöðvaandstæðingar gætu ekki beinlínis hreykt sér af því. Þessi breyting var hluti af endurskipulagningu bandaríska herstöðvakerfisins og því miður þýddi þetta einungis tilflutning hermanna og hergagna í því skyni að þjóna árásargjarnri heimsvaldastefnu Bandaríkjanna enn betur. Þannig er til dæmis beint samhengi milli brottflutnings bandaríska hersins héðan og stækkunar herstöðvarinnar í Vicenza á Ítalíu þó að hermennirnir sem þar bætast við séu fluttir frá herstöðvum í Þýskalandi.
Viðbrögð íslenskra stjórnvalda við brottför bandaríska hersins einkenndust af taugaveiklun og áhyggjum af því að hér myndaðist einhverskonar tómarúm varðandi varnarmál. Viðbrögðin hafa líka dregið dám að þeim ruglanda sem bandarísk stjórnvöld hafa byggt upp varðandi hernaðarleg málefni, ruglanda sem er vísvitandi settur á flot af þeirra hendi, og hugmyndin um stríð gegn hryðjuverkum gegnir þar mikilvægum þætti. Þar er líka um að ræða ógreinilegri mörk milli hernaðarlegra og borgaralegra stofnana sem við höfum séð á undanförnum árum, meðal annars í heræfingum hér á landi. Því miður hefur utanríkisráðherra hinnar nýju ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tekið þessa stefnu upp í öllum aðalatriðum. Í skýrslu sinni til Alþingis 8. nóvember sagði utanríkisráðherra að nú skilgreindi NATO sig ekki lengur sem varnarbandalag heldur fremur sem öryggisbandalag, og hélt áfram: Upprunalegt landvarnarhlutverk er enn til staðar en í hnattvæddum heimi hefur áhersla bandalagsins færst á hinar nýju hnattvæddu ógnir. Þessar ógnir séu t.d. útbreiðsla kjarnorkuvopna, alþjóðleg glæpastarfsemi, neikvæðar afleiðingar loftslagsbreytinga, fátækt og örbirgð og hryðjuverk.
Á nýliðnu ári hafa verið gerðir samningar um heræfingar erlendra herja hér á landi og flug orrustuþotna nokkurra NATO-ríkja um lofthelgi Íslands. Jafnframt eru ýmis önnur teikn á lofti um aukna hervæðingu Íslands og þar leikur dómsmálaráðuneytið sitt hlutverk auk utanríkisráðuneytisins. Og í fyrsta sinn er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar liður undir heitinu varnarmál. Samtals eru áætluð útgjöld Íslands vegna hernaðarlegra málefna ríflega 2,3 milljarðar króna. Það eru líka vonbrigði að hin nýja ríkisstjórn heldur áfram stuðningi sínum við hernaðinn í Afganistan og hefur ekki haft dug til að taka einarðlega til baka stuðning sinn við innrásina í Írak.
Svo allrar sanngirni sé gætt ber þó að geta þess að tilhneigingar hefur gætt hjá síðustu tveimur utanríkisráðherrum að draga friðargæsluna út úr hernaðarlega samhengi. Nýleg tilkynning um varnamálastofnun vekur þó ýmsar spurningar, þó svo opinberlega sé ætlunin með henni að greina í sundur hernaðarlega varnarstarfsemi og borgaralega starfsemi.
Það er dapurlegt að með formann Samfylkingarinnar og fyrrverandi forystukonu og þingkonu Kvennalistans í hlutverki utanríkisráðherra virðist lítil breyting ætla að verða á stefnunni í hernaðarmálum. Í erindi sínu á fundi Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu 27. nóvember sagði hún stjórnvöld fylgja mati NATO á nauðsyn íslensks loftvarnarkerfis og reglulegs eftirlits flugvéla bandalagsríkja og að slíku samstarfi væri ekki ætlað að leysa af hólmi varnarsamstarf við Bandaríkin.
Það var raunar ekki við því að búast að í ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn yrði aðildinni að NATO sagt upp en í öllum flokkum hafa þó heyrst raddir um að varnarsamningurinn við Bandaríkin frá árinu 1951 væri að öllu eðlilegu runninn sitt skeið. Það væri óskandi að á nýju ári tækist andstæðingum herstöðva og NATO í Samfylkingunni sem og öðrum flokkum að hafa þau áhrif á forystu sinna flokka að farið verði vinna að í fyrsta lagi uppsögn varnarsamningsins við hið árásargjarna heimsveldi Bandaríkin og í öðru lagi uppsögn aðildarinnar að NATO. Ennfremur verði loksins samþykkt margflutt tillaga um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorku- og eiturefnavopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja, eins og sú tillaga heitir sem síðast var flutt á þinginu 1999-2000 af þingmönnum Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Þannig mundi Ísland geta gert sig gildandi á alþjóðavettvangi sem friðelskandi og hlutlaust land.
Sú ímynd Íslands hefur fengið styrk á liðnu ári. Í fyrsta lagi ber að fagna því að herstöðvarsvæðið og byggingarnar þar hafa fengið nýtt hlutverk og þjóna nú menntastofnunum, þótt ekki hafi orðið úr að þar yrði sett upp friðarrannsóknarstofnun, eins og lagt var til meðal annars hér á Friðarvefnum. En einnig fékk höfuðborg Íslands, Reykjavík, það hlutverk að hýsa friðartákn í formi ljóssúlu sem lýsir upp á himininn í minningu listamannsins og friðarsinnans John Lennons að frumkvæði ekkju hans, Yoko Ono. Þetta kom í kjölfar stofnunar Friðarstofnunar Reykjavíkur í október 2006. Af því tilefni sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þáverandi borgarstjóri: Ísland er herlaust land og engin hefð er hér fyrir hernaðaruppbyggingu né herrekstri. Því er Reykjavík einstakur vettvangur til viðræðna um friðsamlega úrlausn margvíslegra alþjóðlegra deilumála. Þess er að vænta að nýr borgarstjórnarmeirihluti taki undir þess orð og leggi sitt af mörkum að Ísland verði virkilega herlaust land, án aðildar að hernaðarbandalögum og heræfingum og friðlýst fyrir kjarnorku- og eiturefnavopnum eins og samþykkt hefur verið í nær öllum sveitarfélögum á Íslandi, þar á meðal Reykjavík. Sem slíkt gæti Ísland átt erindi í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.