23.10.2008 | 12:24
Varnir Íslands upp á náð Kínverja?
Eftirfarandi grein birtist á Friðarvefnum 22. október
Frétt í Morgunblaðinu 22. október hófst svo: Íslendingar munu fagna áramótunum með hefðbundnum hætti. Það geta þeir þakkað kínverska flugeldaframleiðandanum Zhang Zong Lin, sem séð hefur Landsbjörg fyrir flugeldum um marga ára skeið. Hann ákvað að lána Landsbjörg fyrir flugeldunum vegna þess óvissuástands sem ríkir. Landsbjörg býst við minni sölu en undanfarin ár og hefur pantað minna magn en áður.
Á vef Landsbjargar er sagt að flugeldasalan sé mikilvægasta einstaka fjáröflun flestra björgunarsveita landsins og í sumum tilfellum standi hún undir nær öllum rekstri einstakra björgunarsveita.
Björgunarsveitirnar byggja á sjálfboðaliðastarfi en engu að síður bera þær ýmislegan og umtalsverðan kostnað. En á sama tíma og þær þurfa að fjármagna þennan kostnað að 70-95% (sja visir.is 27.12.2007) með sölu flugelda og eyða dýrmætum tíma sjálfboðaliða sinna í þessa fjármögnun, þá rekur íslenska utanríkisráðuneytið Varnarmálastofnun fyrir 1500 milljónir króna á ári og NATO-ríki senda hingað orrustuþotur nokkrum sinnum á ári auk árlegra heræfinga, og allt kostar þetta formúu.
Þær raunverulegu ógnir sem steðja að íbúum Íslands, fyrir utan fjárglæfra og aðra glæpastarfsemi, er af völdum náttúrunnar, veðurs, jarðskjálfta og eldgosa. Og liðið sem kemur okkur til varnar og bjargar er fyrst og fremst björgunarsveitirnar auk landhelgisgæslu, lögreglu og sjúkra- og slökkvuliða.
Meðan meira en hálfur annar milljarður fer í gagnslausa stofnun og gagnlausar orrustuflugvélar og hersveitir, þá þarf hið raunverulega varnarlið okkar, björgunarsveitirnar, að bjarga fjárhag sínum með flugeldasölu. Og það er kaldhæðnislegt að þær skuli vera komnar upp á náð kínverskra bísnissmanna þegar fjárglæframennirnir eru búnir að koma Íslandi á kaldan klaka vegna skorts á vörnum gegn þeim.
Það má því segja að varnir Íslands séu komnar upp á náð Kínverja. Og það á sama tíma og útlit er fyrir að efnahagslíf Íslands sé upp á náð Rússa komið.
eó
Í framhaldi af þessu er kannski ekki úr vegi að birta líka ályktun Samtaka hernaðarandstæðinga sem birtist á Friðarvefnum 17. október:
Samtök hernaðarandstæðinga fagna orðum starfandi utanríkisráðherra um að heimsóknir breskra herþotna verði afþakkaðar á næstunni og hvetja íslensk stjórnvöld til að hætta alveg að bjóða hingað erlendum her. Vandséð er hvernig stjórnvöld gætu réttlætt að sóa fjármunum í uppihald hermanna sem koma hingað til að sinna fánýtum æfingum.
Nú þegar raunveruleg ógn steðjar að Íslandi hefur sést hversu gagnslaust það er fyrir þjóðina að tilheyra NATO, bandalagi sem beinist gegn andstæðingi sem ekki er lengur til. Aldrei hefur verið ljósara að NATO-aðild Íslands er kostnaðarsamt dútl sem gerir ekkert til að tryggja öryggi og hag þjóðarinnar.
Athugasemdir
Já það færi betur að eyða þessu í flugelda og landsbjörg, heldur en þennann helvítis(afsakið) tindátaleik. Þetta minnir helst á Don Kíkóta og bardaga hans við vindmyllur. Þetta er mjög jákvætt hjá Zhang Zong Lin að lána Landsbjörg, mjög svo höfðinglegt. Það þyrfti helst að útbúa eitthvert afmarkað svæði, einhversstaðar, t.d. í Sahara eyðimörkinni, fjarri mannabyggðum, þar sem þessir byssuóðu, hefðu frelsi til að skjóta hvorn annann í tætlur, en við hin fengjum frið fyrir þessum morðóðu fjöndum. Góð grein hjá þér Einar
Máni Ragnar Svansson, 23.10.2008 kl. 14:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.