STÖÐVIÐ BLÓÐBAÐIÐ Á GAZA

Yfirlýsing frá Félaginu Ísland-Palestína:

STÖÐVIÐ BLÓÐBAÐIÐ Á GAZA 

Grimmdarlegt framferði Ísraelshers gagnvart varnarlausum íbúum herteknu svæðanna á Gaza hefur náð nýju hámarki í fjöldmorðum síðustu daga. Með loftárásum árásarþyrla, orrustu- og sprengjuflugvéla hafa nú þegar 300 manns verið myrtir og árásirnar halda áfram. Um sjö hundruð manns hafa særst og búast má við að tala fallinna og særðra eigi eftir að hækka eftir því sem tekst að grafa fólk upp úr rústum heimila sinna og annarra bygginga. Konur og börn hafa ekki verið undanþegin í þessum grimmilegu árásum. Skortur er á lífsnauðsynjum, lyfjum og lækningatækjum, rafmagni og vatni. Aðstæður þessar sem fara stöðugt versnandi vegna umsáturs Ísraelshers um Gazaströnd gera hjálparstarfi og heilbrigðisþjónustu erfitt fyrir.

Samkvæmt yfirlýsingum ísraelskra ráðamanna er þetta aðeins byrjunin á nokkurra vikna herferð sem hefur lengi verið í undirbúningi og því fráleitt að skella skuldinni á fórnarlambið eins og reynt hefur verið í öðrum yfirlýsingum Ísraelsstjórnar. Heimasmíðaðar Qassam-flaugar andspyrnuhópa sem skotið hefur verið frá Gaza og inn í Ísrael eru tylliástæða fyrir þeim miskunnarlausu fjöldamorðum sem heimurinn horfir nú uppá. Það hafa 1-2 manns fallið á ári fyrir heimasmíðuðu flaugunum sem geta sannarlega valdið hræðslu í þeim byggðum sem þær ná til en eru, í samanburði við ísraelsku vígvélina, lítið meira en máttvana viðbrögð við ofurefli.

Hlé hafði verið í nokkra mánuði á skotum Qassam-flauga þegar gripið var til þeirra aftur i kjölfar árása Ísraelshers á Gaza kosninganóttina sem úrslit urðu kunn í forsetakosningum Bandaríkjanna og augu heimsbyggðarinnar beindust að. Það var einum og hálfum mánuði áður en vopnahléð rann út. Ísraelsstjórn hafði hvorki virt hernaðarhluta vopnahléssins og enn síður þann hluta þess sem átti að vera að aflétta umsátrínu. Þessu vopnahléi var því sjálfhætt.

Það var kaldranalegt að heyra utanríkisráðherra Íslands í Ríkisútvarpinu leggja fórnarlömb stríðsins og árásaraðalann að jöfnu með því að tala um deiluaðila sem báðir beri ábyrgð. Þó hafði hún áður lýst árásum Ísrelshers á Gazasvæðið sem óverjanlegum. Nær hefði verið að lýsa eindreginni samúð og stuðningi við hrjáða íbúa Gazasvæðinsins en helmingur íbúa þess eru flóttafólk sem mátt hefur bíða lausnar á sínum vanda í 60 ár. Íslenskum stjórnvöldum ber að krefjast þess af Ísraelsstjórn að hún láti af árásarstefnu sinni og fjöldamorðum á Gazasvæðinu, ella verði samskiptum við Ísraelsríki slitið þar til stjórnvöld þar í landi sýni vilja í verki til að fara að alþjóðalögum og samþykktum Sameinuðu þjóðanna og hætti þegar í stað öllu árásum á palestínska íbúa herteknu svæðanna.

  • Við krefjumst þess að Ísraelstjórn stöðvi fjöldamorðin á Gaza þegar í stað.
  • Við krefjumst þess að umsátrinu um Gaza verði nú þegar aflétt.
  • Við krefjumst þess að hernámi Ísraels á palestínsku landi linni
  • Við krefjumst þess að réttur palestínsku þjóðarinnar til sjálfsákvörðunar verði virtur
  • Við krefjumst þess að réttur flóttafólks til að snúa heim aftur verði virtur í samræmi við alþjóðalög um mannréttindi og mannúð.
  • Við krefjumst þess að samskiptum við Ísraelsstjórn verði slitið þar til Ísrael lætur af árásarstefnu sinni.


- Stjórn Félagsins Ísland-Palestína

_____________________________________________________

"All that is necessary for the triumph of evil is for Good men to do nothing"
-
Edmund Burke

“Gaza is a prison and Israel seems to have thrown away the key.”
United Nations Special Rapporteur on Human Rights, John Dugard




HVAÐ ER AÐ GERAST Á GAZA?

Árásir standa nú yfir á borgir og flóttamannabúðir á Gaza svæðinu, einu þéttbýlasta svæði heims.
Yfirlýst markmið árásana er að ráðast gegn lögreglustöðvum og bækistöðvum Hamas samtakana á svæðinu, en hundruðir óbreyttra borgara liggja í valnum. Það er ljóst að laugardagurinn 27. desember var blóðugasti dagur ísraelska hernámsins á Vesturbakkanum og Gaza, sem nú hefur staðið í rúma fjóra áratugi. Hernám sem enn sér ekki fyrir endan á.

Á Gaza býr um 1,5 milljón manns og er meirihluti þeirra flóttamenn. Þvert á alþjóðalög og samþykktir Sameinuðu þjóðanna hafa Ísraelskir ráðamenn í áratugi neitað flóttamönnunum um þann rétt að fá að snúa aftur til sinna heimkynna sinna. Þeir búa því enn í flóttamannabúðum og öðrum byggðum svæðisins, við þröngan kost.

Flóttamenn og aðrir íbúar Gaza hafa frá árinu 1967 búið við ísraelskt hernám. Síðustu þrjú ár hefur hernámsliðið að mestu haldið sig við landamæri svæðisins og haldið íbúum þess í umsátri og herkví, með reglubundnum innrásum inn í flóttamannabúðir og þéttbýliskjarna. Gaza svæðið telst samskvæmt alþjóðalögum vera hernumið land og ber hernámsaðilanum að tryggja öryggi óbreyttra borgara á svæðinu.

Óhætt er að mæla með þessu staðreyndar-yfirliti um Gaza (The Gaza Stip - Fact sheet) frá Palestine Monitor, upplýsingaveitu frjálsra félagasamtaka í Palestínu.

Fyrir þá sem vilja fá frekari upplýsingar um það sem er að gerast á Gaza er hér fyrir neðan vísanir í yfirlýsingar og áskoranir frá félagasamtökum á herteknu svæðunum:


 

ATH. efni þessarar færslu barst mér í tölvupósti frá Félaginu Ísland-Palestína: http://www.palestina.is/

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband