Alþjóðlega samfélagsvettvangnum lokið Belém í Brasilíu

Birtist á Friðarvefnum 1. febrúar.

fsm2009_jpg.gif Í dag, 1. febrúar, lauk í bænum Belém do Pará í norðanverðri Brasilíu níunda alþjóðlega samfélagsvettvangnum, World Social Forum, sem hófst 27. janúar. Hátt í hundrað þúsund manns söfnuðust þarna saman til að ræða hvernig hægt er að skapa öðruvísi veröld.

fsm160_jpg.gif Þessar samkomur spruttu upp úr andófshreyfingunni gegn nýfrjálshyggjunni og hnattvæðingunni sem fór að vaxa upp fyrir rúmum tíu árum. Fyrsti alþjóðlegi samfélagsvettvangurinn var í bænum Porto Alegre í Brasilíu í janúar 2001, en sá tími var valin vegna þess að á sama tíma halda kapítalistarnir og pólitískir þjónar þeirra sína árlegu alþjóðaráðstefnu, World Economic Forum, í bænum Davos í Sviss. Einnig hafa samsvarandi samkomur verið haldnar víðsvegar um heim, fyrir einstök svæði, lönd eða borgir. Þannig var evrópskur samfélagsvettvangur í Malmö í Svíþjóð í september og er frásögn af honum að finna vef MFÍK

anotherworld.jpg Það má segja að varnaðarorð þessara hreyfingar séu nú virkileg að koma fram í þeirri heimskreppu sem er að ríða yfir. Það þótti dapurleg stemning í Davos núna og efnahagskreppan setti að sjálfsögðu einnig svip á samkomuna í Belém. En þar var þó allt með öðrum brag, talsvert litríkari, og þar var haldið áfram umræðum undanfarinna ára um öðruvísi veröld en þá sem einkennst hefur af gróðahyggju, arðráni, rányrkju og hernaðarstefnu. Þar ríkti ekki söknuður eftir horfinni veröld heldur von um nýja og betri veröld.

 

Fórum Social Mundial 2009

World Social Forum

Terraviva - IPS-Inter Press Service

www.wsftv.net

Wsflibrary.org

DECLARATION OF THE ASSEMBLY OF SOCIAL MOVEMENTS AT THE WORLD SOCIAL FORUM 2009: We won’t pay for the crisis. The rich have to pay for it !

Público / International Viewpoint: World Social Forum in Belem - Radicalise the alternatives

BBC: Brazil holds ‘alternative Davos’

Reuters: Leftist forum ends in Amazon; capitalism seen dying

Pacific Free Press: S-O-S AMAZONIA: World Social Forum and Forest Defenders Unite

Upside Down World: The World Social Forum Returns to Brazil

Walden Bello: It is time to aim beyond capitalism

Abdul Khaliq: Is WSF Belem 2009 facing crisis of repetition?

Urban Movements Building Convergences at the WSF 2009

Shared concerns and issues emerging from the 1st science and democracy World Forum

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband