Styður ríkisstjórnin stríðsreksturinn í Írak?

Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu 3. júní 2007. Rétt er að geta þess að utanríkisráðherra lýsti því yfir á Alþingi 31. maí að umrætt orðalag í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þýddi að ríkisstjórnin styður ekki stríðsreksturinn i Írak. „Listi hinna viljugu ríkja“ með nafni Íslands heyrir því sögunni til og Bandaríkin geta ekki lengur litið á Ísland sem stuðningsríki í herferðinni í Írak. Þar sem Ísland hefur verið á þessum lista í fjögur ár án athugasemda íslenskra stjórnvalda hlýtur það að vera eðlilegt að ríkisstjórn Bandaríkjanna verði nú tilkynnt þessi stefnubreyting með formlegum hætti. Höfundur þessarar greinar mun sjá til þess að hún verði kynnt á vettvangi hinnar alþjóðlegu andófshreyfingar gegn innrásinni og stríðsrekstrinum í Írak. Greinin birtist einnig á Friðarvefnum, www.fridur.is, og heimasíðu minni, http://notendur.centrum.is/~einarol, með frekari upplýsingum.

Í stefnuyfirlýsingu hinnar nýju ríkisstjórnar segir svo: „Ný ríkisstjórn harmar stríðsreksturinn í Írak og vill leggja sín lóð á vogarskálar friðar í Írak og Miðausturlöndum, m.a. með þátttöku í mannúðar- og uppbyggingarstarfi.“ Minna og óljósara gat það nú varla verið og má segja að þetta segi svo sem ekki neitt.

Flokksformennirnir tveir kusu að réttlæta hið óljósa orðalag með því að horft væri til framtíðar og fortíðin ætti ekki að þvælast fyrir. Nú er það svo, að sá fortíðargjörningur fyrri ríkisstjórnar að styðja innrásina í Írak er ekki bara fortíð, honum er ekki lokið. „Listi hinna viljugu ríkja“ er enn á heimasíðu Hvíta húsins, „coalition“ eru þessi 49 ríki kölluð þar, „bandalag, sem hefur hafið hernaðaraðgerðir til að afvopna Írak af gjöreyðingarvopnum þess“. Samkvæmt skilningi Bandaríkjastjórnar, sem íslensk stjórnvöld hafa ekki mótmælt, stóð Ísland að þessum hernaðaraðgerðum með Bandaríkjunum. Og þessar hernaðaraðgerðir standa enn. Þannig styður hin nýja ríkisstjórn Íslands stríðsreksturinn í Írak þótt hún harmi hann. Í því er engin mótsögn fólgin, því stundum þarf fleira að gera en gott þykir, og maður getur harmað verk sín þótt hann standi við þau. Það getur vel verið að Bush harmi þennan stríðsrekstur líka, þetta er auðvitað bölvað vesen.

Ég er ekki fyrst og fremst að biðja um uppgjör við fortíðina. Ég er bara að biðja um það að Ísland láti af stuðningi sínum við stríðsreksturinn í Írak. Auðvitað væri ekki verra ef Geir H. Haarde bæðist afsökunar á að hafa stutt innrásina í upphafi. En ég spyr Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur: „Hversu lengi ætlar þú að vera utanríkisráðherra í ríkisstjórn sem styður stríðsreksturinn í Írak?“

Ég spyr af því að þetta er stórmál. Þessi stríðsrekstur hefur kostað meira en 100 þúsund mannslíf, enn fleiri særða og örkumlaða á sál og líkama, efnahagur og innviðir Íraks eru í rúst, tugir þúsunda á flótta. Þessi stríðsrekstur er líka hluti af glæpsamlegri og siðlausri heimsvaldastefnu Bandaríkjanna, hann er ólöglegur að alþjóðalögum, hann tengist stríðsglæpum og ýmsum mannréttindabrotum, svo sem Guantánamo-fangabúðunum.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband